BI - Stjórnendaupplýsingar
Við bjóðum upp á fjölþætta þjónustu í BI. Þar á meðal þjónustu, ráðgjöf og námskeið.
Lausnir frá Jet Global
Eru bylting í aðgengi og vinnslu gagna úr Microsoft Dynamic. Lausnirnar veita aðgang að gögnum og algjöra stjórn á þeim á ótrúlega einfaldan hátt, án þess að notandinn þurfi sérhæfða þekkingu eða önnur tól.
Lausnirnar frá Jet standa saman af:
- Jet Reports - öflug skýrslugjöf í Excel
- Jet Analytics - öll gögnin á einum stað
- Jet Budgets - einföld áætlunargerð
- Jet Hub - aðgengi að gögnum hvar og hvenær sem er
Power BI
Microsoft Power BI er það greiningartól sem er í hvað mestri sókn um þessar mundir. Power BI auðveldar til muna stjórnendum og greinendum hjá fyrirtækjum að smíða greiningar ofan á gögn fyrirtækisins. Hægt er að útbúa myndræn og gagnvirk mælaborð og deila þeim á þægilegan máta með notendum. Slíkt gefur góða innsýn í rekstrarumhverfi fyrirtækisins og getur oft leitt í ljós óvænta möguleika til þess að auka forskot.
Ráðgjafar Advania í viðskiptagreind hafa mikla reynslu í ráðgjöf og innleiðingum á Power BI og hafa aðstoðað bæði innlend og erlend fyrirtæki á þessu sviði.
Targit
Targit BI Suite er öflugt greiningartól sem gefur yfirlit yfir stöðuna á lykilmælikvörðum fyrirtækisins. Virk mælaborð og skýrslur tryggja stjórnendum ítarlegar upplýsingar um þá þætti sem eru fyrirtækinu mikilvægir og auðvelda þannig ákvarðanatöku.
Með Targit BI Suite getur notandinn breytt gögnum í áþreifanlegar upplýsingar með því að búa til greiningar, lifandi mælaborð og ítarlegar skýrslur byggðar á gögnum fyrirtækisins.