|
Pétur Þorvarðarson
Fæddur 10. apríl 1989 – jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju 30. maí 2006.

Pétur Þorvarðarson leikmaður 3.flokks Hattar í handbolta fannst látinn sunnudaginn 21.maí eftir að hafa verið týndur á fjöllum í rúma viku. Pétur sem hefur alla tíð hefur verið áberandi í yngri flokkum Íþróttafélagsins Hattar iðkaði knattspyrnu, körfuknattleik og handknattleik upp yngri flokka Hattar.
Minningarnar um þennan dreng, sem alltaf var brosandi, hress og kátur, eru fjölmargar. Keppnisferðir hans með Handknattleiksdeildinni skipta tugum, sérstaklega eftirminnilegt er Húsavíkurmótið 2003. Pétur var vinsælasti maðurinn á svæðinu og flestir um 500 keppenda vissu hver Pétur í Hetti var og hver einasta af um 300 leikmönnum kvennaliðanna. Á föstudagskvöldinu var gat í dagskrá mótsins og Pétur bað okkur Gústa um leyfi til að bjóða í partý í Skátaheimilið sem var gististaður okkar, við samþykktum það með því skilyrði að sigur innist á Fram í leik kvöldsins. Það þarf ekki að spyrja að því að Pétur lokaði vörninni og barði sína menn áfram til sigurs, enda kom á daginn að hann hafði þá þegar boðið nánast öllum stelpum á svæðinu í partý. Næstu tvö ár á eftir voru oftar en ekki einhverjar af msn vinkonum Péturs frá Húsavíkurmótinu mættar til að hitta Pésa og styðja okkur þegar við kepptum í bænum.
Nú þegar þú ert farinn burt úr þessum heimi er maður sérlega þakklátur fyrir allar góðu stundirnar, ferðina til Selfoss og Eyja í vor, Reykjavíkurferðin í vetur sem endaði í 5 daga ferð hjá mér, Jögga og þér og við fengum skammir fyrir partíhald frameftir nóttu, þegar það voru bara þið strákarnir í 3.fl að spila FIFA af innlifun.
Ef þú ert einhverstaðar hérna fyrir ofan að fylgjast með, þá máttu vera stoltur af bræðrum þínum, Hafþór og Andrés leituðu og leituðu og Jöggi er búinn að standa sig eins og hetja, líkt og foreldrar þínir og vinirnir sem virðast skipta hundruðum.
Það er ljóst að Höttur hefur misst einn sinn efnilegasta liðsmann og Egilsstaðir einn sinn skemmtilegasta íbúa, en minning um góðan dreng mun lifa að eilífu. Megi guð hjálpa og styrkja fjölskyldu og vini á þessum erfiðu tímum.
Með kveðju frá Handknattleiksdeild Hattar
Pétur F. Gíslason

Pétur og Anton Brynjar leikmenn 3.flokks.

Pétur í UMFÍ húsinu í 4.flokksferð veturinn ´04 - ´05
 
Húsavíkurmótið 2003. Pétur var hrókur alls fagnaðar.
Minningargrein um Pétur Þorvarðarson Kjerúlf
Okkur langar að minnast í nokkrum orðum félaga sem féll óvænt frá.
Þegar við fréttum að þú værir týndur gerðum við okkur ekki grein fyrir alvarleika málsins. Þegar leið á daginn fórum við að gera okkur grein fyrir hversu alvarlegt þetta var og sváfu flestir okkar lítið um þá nótt. Morguninn eftir fóru þeir af okkur sem gátu að leita að þér ásamt fjölda annarra sjálfboðaliða og björgunarsveitamanna. Þrátt fyrir þann fjölda bar leitin því miður ekki árangur fyrr en rúmri viku eftir að þú týndist. Hversu langt þú labbaðir sýndi hversu hraustur þú varst og að þú gafst aldrei auðveldlega upp. Það er einmitt eitt af því sem einkenndi þig í íþróttum og við munum aldrei gleyma. Í óvissunni sýndi sig hversu mörgum þykir vænt um þig, kertafleytingin í Tjarnagarðinum, sem var ákveðin með stuttum fyrirvara, þrátt fyrir það mætti fjöldi manns sem sýndi hvað þú áttir marga að. Enda varst þú alltaf hress og gast alltaf komið manni í gott skap með hnyttnum skrýtlum og skondnum atvikum, jafnvel eftir súra tapleiki í handboltaferðum komst þú okkur í gott skap. Við minnumst til dæmis þegar við vorum í síðustu ferðinni okkar með þér þegar þú misstir símann þinn í jörðina. Þá öskraðir þú “nei síminn minn er “goth” ” því eftir höggið var skjárinn alveg svartur. En þetta sýnir að þú sást alltaf einhverja bjarta hlið á málunum. En nú ertu vonandi kominn á betri stað en við munum alltaf muna eftir þér og skondnu atvikunum þínum.
Hvíldu í friði
Steinar Pálmi, Stefán Andri, Steinar Logi, Huginn Rafn, Arnar Guðni, Kristófer, Þorleifur Bóas, Karl Kristján, Guðmundur Þorsteinn og aðrir félagar úr Handknattleiksdeild Hattar.

3.flokkur Hattar eftir sigur í HK heimilinu í febrúar

Ólafur Einir, Arnar Ingi, Hafþór, Elvar, Steinar Logi og Pétur Kjerúlf sýna nýja búninga

Pétur á bekknum hjá 3.flokk í vetur.

Pétur skrautlegur á töflunni hjá 3.flokk vor 2005.

Morgunæfing fyrir 2 árum.

Pési í stuði.
|